25desember

Jóladagur

Allt stressið er farið, allir pakkarnir eru farnir undan trénu, núna er jólasnjór úti en hann hefði mátt vera í gær. ég ligg bara í rúminu enþá, með konfekt og mandarínur, bara klæddur í stuttbuxur...
Það er ekkert jólaboð í dag en það verður hinsvegar á morgun, það er allt lokað í dag og í rauninni er eina stefnan í dag bara að liggja afvelta og njóta þess að vera til og fá ekki samviskubit yfir því hvað maður lætur í munninn...


Ég fékk mikið af pökkum í gær, ég nenni ekkert að nefna það hvað ég fékk en ég skal hinsvegar segja ykkur það að ég fór í miðnæturmessu í gærkvöldi og vá hvað mér leið vel þarna í Hallgrímskirkjunni, þetta er eitthvað sem ég hef haft sem reglu, það er að fara í messu á aðfangadag...
Manni líður svo vel á eftir að það er engu líkt..
Svo var spilað spilið spark fram eftir nóttu, ég, bróðir minn og frændi, það er gaman að segja frá því að ég kláraði að fara 2 sinnum í mark áður en þeir komust einu sinni, hahaha fótboltaheilinn hann Hallur :)


Á morgun verður svo virkilega gaman því þá kemur sonur minn hingað og hann fær að opna pakkana frá mínu fólki sem bíða hans undir trénu, það mun verða fjöldi fólks sem kemur hingað bara til þess að fá kaffi og hitta litla engilinn..
Allir vilja hitta engla á jólunum og ég er svo heppinn að eiga einn slíkann :)


Knús frá mér til ykkar sem lesa þetta blogg, love you og hafið það sem best...
25. desember 2006 klukkan 20:01
Hallur Kristján Ásgeirsson
1 athugasemd
24desember

24. desember 2006 17:12

Gleðileg Jól krakkar mínir og njótið dagsins, ég sjálfur er að fara að gera mig laglegan og hreinan og svo ætla ég að borða nóg af hangikjöti og fleira..

Svo ætla ég að skella mér í miðnæturmessu í Hallgrímskirkju í kvöld, það er svo róandi og fallegt :)

Þetta er jú afmæli drottins, það vill oft gleymast en ég er ekki einn af þeim :)

bæ bæ

24. desember 2006 klukkan 23:11
Hallur Kristján Ásgeirsson
2 athugasemdir
20desember

Jćja best ađ blogga

Ég hef ekki mikið verið að blogga undanfarið enda hefur tölvan verið að stríða mér og ég hef verið öðrum hnöppum að hneppa- frá. hahaha
Nei svona er þetta bara, en nú fer að líð að jólum og reyndar á ég afmæli 23 des fyrir þá sem vita það ekki, en ég verð 29 ára gamall þá, isssss það er ekkert ég á frænku sem er 93 ára!....
En já það líður að jólum og ég fór og keypti jólagjafir handa börnunum mínum í dag og handa Geira bróður mínum, ég skal sýna ykkur hvað ég keypti seinna því ekki má maður segja hvað þau fá í jólagjöf, ég meina Aron og Saga gætu kannski lent inná þessa síðu, hver veit :)

Ég fékk hringingu frá Óla Þór vini mínum, þessi drengur er einn mesti gullmoli sem til er, hann var að ræða við mig um ýmislegt, hann sagði við mig að hann væri til í að eiga konu og væri til í að eignast krakka, hann sagðist einnig vonast til að hann væri ekki getulaus svo að hann geti gert þetta...
Ég sagði við hann að ég myndi þá bara redda honum smá af mínum djús Þannig að hann myndi bara skella honum inn um leið og hann fengi það, hahaha
Hann sagði þá eitthvað sem ég mun aldrei gleyma, Hallur þá átt allavega geðveikt falleg börn þannig að það væri bara góður greiði...
Hvað getur maður annað en fengið kökk í hálsinn og roðnað eins og 12 ára stelpa! :)  Snillingur sem mér finnst alveg einstaklega vænt um enda er hann með hjarta úr gulli....

Ég var að skoða tærnar á syni mínum í fyrradag og þá kom frekar fyndið í ljós, já við erum með alveg eins tær, ekki að það sé gott því ég er með ógeðslega ljótar tær, það verður bara að viðurkennast :)



Já þetta eru tærnar okkar, hans eru nú samt alveg hrikalega krúttlegar, en mínar eru ógeðslegar það er klárt mál, spurning um að skella sér í snyrtingu með þær :)

En jæja ég er bara að láta vita að ég er enþá hérna en ég blogga betur seinna því núna er ég að fara að kaupa fleiri gjafir, kiss kiss and love u all....



Já og svo nokkrar aðrar myndir líka :)


20. desember 2006 klukkan 02:13
Hallur Kristján Ásgeirsson
6 athugasemdir
15desember

Skilabođ

Smá skilaboð

Ég ætla nú bara aðeins að segja aðeins frá þvi sem skiptir máli og frá því sem maður lærir með tímanum og þetta er alt tengt ástinni..

Ekki vaða yfir lækinn þar sem hann er dýpstur, farðu þar sem er öruggt að fara,  ég meina að það er ekkert við í að verða hrifinn af gellu sem er of hættuleg og sem gæti nánast gleypt þig...

Ef að þú ætlar að fara yfir heila á, þá skaltu vera búinn að kanna vel ánna áður en þú skellir þér í hana, kanna allt við hana og fara þar sem þér er óhætt að fara..
Ég persónulega á mjög erfitt með að treysta fólki, sama hvort að það eru stelpur eða strákar, ég get ekki byrjað með stelpu nema að fá að vita hvað hún vill og hvað hún hefur afreka í gegnum lífið, fá að vita áhugamál og lesa hennar persónuleika...

Það er líka þegar þú elskar einhverja þá er gott að vita það alveg hvort að hún hafi áhuga á þér eða hvort að það sé einhver séns að vera með henni..
Þannig var það hjá mér lengi að ég fékk ekki stóru ástina mína, stelpu sem ég hafði verið með áður og sem að ég elskaði meira en allt í heiminum, hún vissi alltaf að hún gat fengið mig aftur og því var hún ekki að stressa sig neitt, þegar ég fann svo hamingju aftur þá fattaði hún það of seint og sá eftir mér...

Ef þú elskar einhverja aðra en ferð í samband þá er erfitt að einbeita sér að stelpunni sem maður er með því maður heldur alltaf í vonina, best er að reyna að útiloka hana og reyna að efla þessa nyju ást.. Auðvitað fer maður ekkert í samband með stelpu ef maður elskar aðra, sko en ef hún hefur sagt þér það að hún vilji þig ekki, þá þýðir ekkert að hugsa meira um hana því hún elskar þig ekki eins mikið og þú gerir við hana...
Eins og ég sagði þá ferðu svo kannski bara að búa með henni og allt getur gengið upp, þá á endanum gleymiru þeirri sem þú elskaðir og þetta verður hennar missir.......

Svo geturu líka gert mistök eins og allir og sérð eftir því endalaust sama hvað þú reynir að gleyma því sem gerðist, þú getur líka verið særður eftir að hún gerði þér eitthvað, lærðu þá bara af mistökunum og ekki gera þau aftur, þetta á við um mig og ég mun aldrei svíkja kærustuna mína, ég hef gert það og það hefur verið að naga mig síðan, ég mun aldrei svíkja ástina mína, hvorki stelpuna sem ég er með eða aðra sem ég elska, börnin, og fjölskylduna...

Þrátt fyrir að hafa prófað ýmislegt um árin þá verð ég að segja að ég gæti varla verið hamingjusamari, auðvitað hafa ekki allir hlutir gengið upp en ég er sáttur við sjálfan mig og ég er sáttur við lífið, ég hef það ógeðslega gott og ég sé bara góða tíma framundan...
Lífið er dásamlegt það er klárt mál því mun ég njóta þess að elska, hafa það gott og gera eins gott úr hlutunum og hægt er...
Auðvitað hefði ég veilja hafa suma hluti öðruvísi en þeir eru ekki í boði í dag, því þíðir ekkert að hugsa um það sem gat gerst, betra er að vinna úr því sem er næst þér...

Þú veist ekki hvað þú hefur átt fyrren þú hefur misst, ekki láta þetta gerast fyrir ykkur, haltu í það sem þú elskar því lífið er ótrúlega stutt og gæti jafnvel endað útá götu eins og hjá 27 manns á þessu ári.....

Ef að manneskjan sem þú elskar deyr á morgun, þá hugsaru, afhverju var ég ekki betri við hana, afhverju sagði ég ekki við hana ég elska þig áður en hún fór af stað á bílnum...
Segðu það sem þér býr í hjarta hverju sinni nema það sé eitthvað sem særir fólk...


Já ég er ekki bara fyndinn krakkar mínir, ég hef mína mjúku hlið sem fáir fá að sjá, ég vona að þessi pistill geti hjálpað þér svona rétt fyrir jólin..
Ég elska ykkur öll, bara mismikið


15. desember 2006 klukkan 23:21
Hallur Kristján Ásgeirsson
4 athugasemdir
11desember

Hćjjjjj

Er líða fer að jólum

Jæja nú ertu ekki margir dagar til jóla, maður er svona farinn að pæla í þvi hvað ég eigi að gefa fólkinu í jólagjöf, þetta er alltaf virkilega erfitt því ég er sá lélagasti þegar við kemur að versla á aðra...
Það er ekkert lítið sem maður þarf að gefa þessi jólin, alveg hellingur því þetta er svo stór fjölskylda og er alltaf að stækka, á maður ekki bara að gefa öllum kerti og spil :)

Svo á ég auðvitað afmæli 23 des, djöfull er maður að verða gamall, þetta fer að verða hættulegt, en það fylgir víst þessi lífi að maður yngist ekki, en ég er allavega ungur í anda, það getur maður ekki sagt um alla :)

Kallinn byrjaður að æfa aftur og nú er ég einmitt að fara að skella mér á æfingu, svo styttist í pabbahelgina, hrikalega hlakka ég til að fá að hafa guttann í nokkra daga og knúsa hann endalaust mikið...
Svo er ég búinn að lenda í svakalegum hlutum síðustu daga, þá hluti er ekki hægt að segja hérna, því miður en það er klárt mál að lífið kemur endalaust á óvart, get ekki sagt annað...

 Yfir í annað. vinur minn á Djúpavogi óskaði mér til hamingju með að 3 barnið væri á leiðinni, hann sagði að fólk fyrir austan hafi verið að segja sér það á barnum, hahahahaha hefur fólk virkilega ekkert betra að gera en að bulla, ég átti ekki orð, mér finnst þetta nú alveg meira en nóg í bili og hann gat ekki sagt mér með hverri þetta hafi átt að vera, vá hvað fólk getur verið einmanna, væri gaman að vita hver býr til svona sögur, úff hvað sumir eiga bágt en sem betur fer getur maður haft húmir fyrir svona...
En þeir sem héldu þetta hafa nú fengið það á hreint að það er ekkert til í þessu, svo alls ekki, enda stunda ég og Jóhanna bara rassaríðingar svo að við séum alveg örugg, hahahahahahhahahaha :)

Jæja ég er farinn á æfingu, kv Hallur frjósami :)



11. desember 2006 klukkan 23:17
Hallur Kristján Ásgeirsson
7 athugasemdir
27nóvember

Snilldar ferđ!!!!!!!!!



Hvað get ég sagt annað en að ég að ég sé í skyjunum eftir þessa ferð vestur, ég fór á laugardagsmorgun og kom til baka kl 4 á sunnudaginn, þetta var bara of stutt ferð, ég ætla að fara fljótlega vonandi aftur og þá stoppa lengur hjá honum Dóra mínum..
Ég kynntist svo mikið af fólki þarna á þessum stutta tíma og það var svakalega gaman að fá að heyra að fólk var að fíla mig þarna, sagði að ég væri frábær trúbador og að ég væri velkominn aftur og helst fljótlega :)
Ísafjörður, Bolungarvík og Flateyri fengu heimsókn mína á þessum stutta tíma, ég spilaði á stað sem heitir Kjallarinn en hann er á Bolungarvík, snilldar pöbb og góð stemming, það var árshátíð í gangi á hæðinni fyrir ofan og eigandinn plataði mig til að spila 2-3 lög á henni, ég labbi þarna inní salinn þar sem ég þekkti engan, kynnti mig og spilaði og fólkið söng með og þetta var bara tær snilld, svo sagði ég þeim að ég væri að spila niðri og að fólk væri velkomið þarngað að syngja meira og drekka úr sér allt vit, það gerðu flestir og svo vortist vera að Dóri hafi heyrt þetta líka þó að hann hafi verið niðri á meðan, en hann fór allavega eftir þessu :)

Geiri keyrði okkur um götur vestfjarða, hann var edrú og á bíl, hann fær stórt prik fyrir að nenna að skutla okkur en eins og hann orðaði þetta sjálfur: það verður einhver að skutla stjörnunni, hahahha snillingur :)
Þegar ég kynntist Dóra og Geira í sumar þá vissi ég að þetta væru góðir drengir með hjarta úr gulli og það hefur heldur betur komið á daginn, ég verð að segja það ég kynntis líka aðiens vinum þeirra og þeir virtust vera auðlingar líka, allavega var mér tekið vel hvert sem ég fór..
Við horfðum á Liverpool vinna Man City og Barca rústa leik líka, þetta var gaman, ég held að ég hafi sjaldan skemmt mér eins vel, það var líka gott að vera ekki hauslaus og haugafullur og muna ekki eftir hlutunum, en auðvitað gat maður það ekki þar sem ég var að spila :)

Svo var eftirparty hjá henni Sigrúnu og það var tær snilld þar sem hann Dóri var miðpunktur alls fagnaðar, hann dansaði fallegan dans á naríunum við mikinn fögnuð viðstaddra :)  hahaha
Svo kynntsit ég fleirum í partyinu, Sigrún, Vera, Hrafnhildur og systir hennar sem ég man ekki hvað heitir, reyndar eru þær ekki systur en ég ákvað það bara þannig að því var ekkert breytt :)  þessar stelpur eru æði, ég held bara að fólk útá landi sé meira opnara fyrir fólki, ég er nú sjálfur frá litlum stað en reyndar er fólkið þar aðeins lokaðra en þarna, allavega við fyrstu kynni...
Dansinn hans Dóra endaði um kl 5 um morguninn þegar ég tók í brókina hans og brókaði hann þannig að brókin fór yfir hnakkann og uppá haus, hann var svo fullur að hann brjálaðist við mig eftir þetta, við rifumst smá en það var ekkert alvarlegt, við erum allavega búnir að hlægja af þessu, hahaha og Dóri man ekkert eftir þessu en sagði við mig áðan að brókin hans væri alveg í tætlum :)
Svona eiga vinir að vera :)  hahahahaha bara snilld :)

Við vorum að spjalla saman áðan og skipuleggja næstu ferð mína vestur, það er strax byrjað að plana hana, hahaha þannig að þá verður gert eitthvað meira og þá spila ég sennilega á Ísafirði og kannaski aftur í Bolungarvík :) allavega er eigandinn meira en til í það þannig að það er um að gera að taka á þvi bara, jafnvel fara í smá bolta ef það er möguleiki :)

Þegar ég var í pásu í kjallaranum settiast ég bara niður og slappaði af, þá kom til mín stúlka og sagði við mig að ég ætti sætasta litla strák sem hún hefur séð og hún sagði að augun hans hafi gjörsamlega brætt hana, hún bætti við hvort að ég gæti reddað henni svo að hún myndi eignast svona fallegt barn, hahahaaha það er líka húmor í fólki :)
Sko ég spurði hana hvernig hún vissi að ég ætti strák, hún sagði að vinkona sín hafi sagt sér þetta og sýnt sér myndir..
Að fá að heyra svona frá fólki sem maður þekkir ekki er alveg yndislegt, hvað getur maður eiginlega sagt, ég varð bara eins og lítil 12 ára stelpa, roðnaði bara og þakkaði fyrir falleg orð :)

Þegar ég flaug framhjá perlunni í dag þá mundi ég eftir því að það er markaður þar, ég kom við þar og keypti eitt stykki gítar handa Aroni Bjarka, þessi gítar spilar nokkur af vinsælustu lögunum í dag, hann blikkar allskonar ljósum og svo er einnig hægt að spila á hann og það er einnig karoke, þetta er snilldar gripur og á eftir að koma mér vel því að Aron minn fer heldur harkalega með 100.000 þúsunda króna gítarinn pabba síns, ekki það að ég tými ekki að leyfa honum að glamra því hann er farinn að nota hann meira en ég, hahahha :)
En þessi gítar á eftir að nýtast honum mun betur en hinn, svo fær hann alvöru gítar eftir nokkur ár :)

Meiraprófið heldur áfram í dag, það er ágætt því ég er alveg að skemmta mér ágætlega í þessu, verður líka gaman þegar þetta er búið og ég er búinn að fá nánast loforð fyrir vinnu í tengslum við þetta :)
Vel borguð vinna og það er það sem skiptir máli, svo næsta haust þá tek ég einkafjálfaranámið, get það ekki núna því það var fullbókað en ég kemst inn næst, búinn að fá loforð um það :)  svo eru báðir þessir skólar mjög dýrir þannig að ég verð bara að spara fyrir þessu námi og taka það eftir tæpt ár..

En jæja þessi færsla er orðin full löng, vona að einhver hafi nennt að lesa, ég vill enda þetta á því að þakka öllum þeim sem ég hitti um helgina kærlega fyrir skemmtilegustu helgi í langan tíma :)     bæ



27. nóvember 2006 klukkan 08:32
Hallur Kristján Ásgeirsson
8 athugasemdir
25nóvember

Helgin komin :)


                
Halli og Kalli verða ekki að spila saman um helgina því ég er að fara einn vestur í Bolungarvík að spila annað kvöld, ég ætla að reyna að hafa gaman að þessu og þetta verður bara skemmtilegt held ég enda verð ég með félaga mínum honum Dóra Skarp þarna en hann býr á Ísafirði :)
Ég verð lentur um kl 11 á Ísafirði ef allt fer að vonum og reikna með að byrja að spila kl 23 annað kvöld á stað sem ég man ekki eftir að hafa komið á, en það er bara meira spennandi verð ég að segja :)


Ég segi bara góða helgi elskurnar mínar
25. nóvember 2006 klukkan 05:24
Hallur Kristján Ásgeirsson
2 athugasemdir
20nóvember

Aron Bjarki minn tók sín fyrstu skref

Hæjjjjj,  ég er svo stoltur í kvöld. sonur minn er byrjaður að labba smá, hann náði alveg 5 skrefum í einu litli kallinn minn og hann var ekkert smá montinn af sjálfum sér, brosti alveg út að eyrum, samt var ég miklu montnari en hann :) 
Hann var að fara áðan, ég sakna hans strax, vá hvernig er hægt að elska svona mikið, þetta verður bara meira og meira!! veit ekki hvar þetta endar :)

En jæja það er búið að vera fínt hingað til í meiraprófinu, ég hlakka mjög mikið til að klára þetta, það verður fínt að hafa þessi réttindi, ég er búinn að vera á hverjum degi i þessu, alla síðustu viku....
Vá, hvað er málið með allan þennan snjó hérna, ég skil þetta ekki, ég er ekkert voðalega sáttu við þetta :(  en snjórinn má samt alveg koma rétt fyrir jólin en það er eins og hann geti ekki verið svona rétt yfir jólin, þetta er ekkert smá fljótt að líða, það er rúmlega mánuður í jólin og afmælið mitt...

Það getur bara vel verið að ég sé að fara vestur um næstu helgi að trúbba og heimsækja vin minn hann Dóra Skarp, mamma hans var að segja honum að henni hlakki svo til að fá mig, að ég sé svo voðalega sætur strákur með geðveikann rass, nei nei nú er ég að grínast, en það getur verið að ég skreppi, það verður gaman, ég hef ekki komið vestur síðan 1989, það er dáldið langt síðan...

Óli og Inga voru að eignast lítinn strák í dag, það þýðir að ég var að eignast lítinn frænda :)
Til hamingju með þetta mitt fólk :)

Ég nenni ekki að hafa þetta lengra í kvöld, bæ bæ


20. nóvember 2006 klukkan 03:34
Hallur Kristján Ásgeirsson
7 athugasemdir
09nóvember

Hverfisbarinn

Ég og Kalli erum að fara að spila á Hverfisbarnum í kvöld, fimmtudagskvöld, þetta er annar fimmtudagurinn í röð sem við erum að spila þarna, það verður vonandi gaman, en eins og alltaf áður þá er uppistand kl 9 um kvöldið en svo spilum við frá kl 11 - 01.........
Ég vona að þú kæri lesandi hafir áhuga á því að kíkja á okkur félagana og kannski getur þú skellt í þig 1 köldum thule sem verður á tilboði ef ég man rétt, allavega ætla ég að fá mér 2 kalda, ekki slæmt það, Kalli fær sér sennilega 4-5 ef ég þekki hann rétt, helv róninn :) djók..

Bara fyrir þá sem ekki vita þá var Liverpool að komast áfram í deildarbikarnum, unnu Birmingham 0-1 á útivelli í alveg ágætis leik þrátt fyrir mikið breytt lið, alltaf gaman að horfa á sigurleiki hjá mínum mönnum :)
Og fyrir þá sem ekki vita þá tapaði Man Utd fyrir Southend í fyrrakvöld 1-0, Man Utd voru með nokkuð sterkt lið inná í þessum leik því stjórinn var ekki sáttur við leikinn gegn Crew í síðustu umferð, þannig að hann fékk nokkrar hetjur til þess að spila og klára þetta skítalið, en viti menn, nú er verið að deila um hvort liðið er meira skítalið, ég meina United hafði titil að verja, en því miður fyrir þá eru þeir úr leik og ég get ekki séð að þeir vinni titil á þessu tímabili, því þetta er oft talin bikar litlu liðana eins og united sýndi í fyrra....

Liverpool sem eru bikarmeistarar og evrópumeistar tímabilið þar á undan hafa nú ekki lagt mikið í þessa keppni á meðan United ætti auðvitað að reyna að verja þennan titil því þetta er eini titilinn þeirra síðustu 2 tímabil, en þeir eru efstir í deildinni í dag en verst að það mun ekki skipta máli í Maí :)

Jæja nóg af böggi, fólk skilur alveg hvað ég er að fara, ég hata United og er glaður þegar þeir tapa, menn verða bara að virða það, Liverpool er liðið krakkar mínir, sumir hafa valið að velja rangt og það er nú bara þannig að það geta ekki allir haldið með sama liðinu og þá væri heldur ekkert gaman :)

Aron Bjarki verður hjá mér í dag, hann kemur til mín kl 2 og mun gista hérna hjá mér í nótt, mig hlakkar mikið til, við getum haldið áfram þar sem frá var horfið, reynt að skilja hvorn annan og talað þetta tungumál sem við skiljum en enginn annar í kringum okkur, orð eins og boootis og poiug, já svona er okkar mál en þetta eru bara brandar sem við 2 skiljum, enda erum við alltaf hlægjandi saman...

En annars er bara ekkert nýtt að frétt, ég er enþá með skalla, en sjáumst vonandi á Hverfis, bæ
09. nóvember 2006 klukkan 09:05
Hallur Kristján Ásgeirsson
10 athugasemdir
07nóvember

Ţađ halut ađ koma ađ ţví

Jæja nú verður allt vitlaust í heiminum, Bandaríkjamenn hafa ákveðið að drepa Sadam Husein, talið er að það eigi að hengja hann, ef að þetta verður ekki til þess að allt verður vitlaust þá veit ég ekki hvað, en það hlaut að koma að því að þeir myndu gera eitthvað, sjálfsagt er betra fyrir kallinn að drepast en að vera fangi þarna því að Bandaríkjamenn munu aldrei sleppa honum, það er ekki séns.....

Núna er ég stoltur að segja frá því að ég kaus frjálslynda í síðustu kosningum, ástæðan er sú að þeir hafa opnað umræðuna um að stoppa innflutining eða allavega minnka innflutning á erlendu fólki til landsins, ég tek húfuna niður fyrir Guðjóni og félögum fyrir að koma þessari umfjöllun af stað..
Í alvöru ég er enginn rasisti eða hef á móti útlendinum en ég tel að það sé komið nóg núna, það er orðið of mikið af þessu fólki, Asíubúar, fólk frá Afríku og mikið af Pólverjum hafa fest rætur á okkar ástkæra landi, sem betur fer þá er mikið um vinnu á Íslandi og þetta fólk er aðalega að vinna í fiski því að Íslendingar nenna ekki að vinna í fiski, en ég held að það sé ekki málið, þessi vinna er svo láglaunuð að það er til skammar....

Í nokkrum Evrópulöndum er innflutningur á fólki orðið vandamál því það þiggur svo lág laun og núna er heimafólkið í vandræðum með að fá vinnu, þetta getur breyst á Íslandi líka, ég tel að frjálslyndir séu að opna þetta mál á góðum tíma því það er ekki seinna vænna....
Þetta varðar ekki bara vinnumarkaðinn því að þetta fólk er svo ólíkt okkur og vilja ekki taka þátt í okkar samfélagi eins og við viljum, við höfum okkar hefðir og eigum að halda í þær...

Auðvitað hafa alltaf verið til eiturlyf á Íslandi en mér finnst eins og þetta hafi versnað með innkomu þessa fólks, auðvitað hefur það sín sambönd og á auðvelt með að koma þessu ógeði til landsins, ég er ekki einn um þess skoðun, en auðvitað er þetta viðkvæmt mál og fólk þorir kannski ekki að tala mikið um þessa hlið en þetta er bara sannleikur sem ber að taka á..

Krakkarnir okkar sem við elskum jú öll og við viljum bara það besta fyrir þau eiga ekki að þurfa að líða fyrir mistök okkar og ég segi enn og aftur að nóg sé komið, ég vill ekki reka fólk úr landi en ég vill stoppa þetta núna, ekki fleira fólk til landsins, mér er sama hvernig það er á litinn, svart, gult, grænt, rautt, hvítt, og jafnvel blátt, þetta er að verða stórt vandamál...

Annars er ég bara brattur þrát fyrir að litli kúturinn minn hafi látið smá pest í pabba sinn en það lagast, ég er skárri í dag en í gær..
Ég er loksins að fara að taka meiraprófið, ég mun byrja á mánudaginn, það verður alla daga í 2 vikur og eftir það þá er próf og vonandi verð ég kominn með réttindi á flesta bíla eftir 3 vikur eða svo, það verður gaman að sjá hvernig þetta gengur hjá mér og ég verð að viðurkenna að ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni..
Ég get vel hugsað mér að keyra stóra bíla, vörubíl eða jafnvel trailer, sum fyrirtæki eru að bjóða mjög góð laun fyrir bílstjóra sem vilja keyra svona bíla....

Jóhanna gaf mér diskinn með Bubba á dvd, 06 06 06 þessir tónleikar hafa hljómað í botni í nokkra daga, ég fæ ekki nóg, bara snilld og ég fæ gæsahúð í hvert sinn sem hann spilar eitt ákveðið lag, takk fyrir diskinn sætasta..
Hann reyndar ruglaðist aðeins of mikið í Romeo og Júlía en ég fyrirgef kallinum það alveg :)

En jæja bestað fara að fá sér panadil hot, sem Jóhanna færði mér einnig, góð stelpa hér á ferð :)

BÆ........


Ein mynd af Sætasta :)
07. nóvember 2006 klukkan 20:18
Hallur Kristján Ásgeirsson
5 athugasemdir

Myndbönd og lög eftir mig :)

Auglýsing

Textareitur

Status: Taken
Address: Hafnarfjörđur
Soccer: Liverpool
Bands: Pink Floyed, BeeGees, Beatles, Bon Jovi, Simon and Garfunkel, Bubbi, Pearl Jam, Ný Dönsk, Halli og Kalli..
Birthday: 23 Des

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...